*Gallup PPM fjórði ársfjórðungur 2020 (20 til 49 ára)
K100 spilar létta dægurtónlist fyrir landsmenn – bara það besta frá 90’s til dagsins í dag. K100 sendir út á FM á SV-horninu, Suðurlandi, Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði og Bolungavík og er aðgengilegt í sjónvarpsþjónustu Símans og Vodafone. Auk þess er hægt að hlusta á okkur hvar sem er á vefnum.
K100 varð til úr útvarpsstöðinni Kaninn, sem Einar Bárðarson stofnaði 2009. Árið 2012 keypti Síminn hana og gaf henni núverandi nafn. Síðan í lok árs 2016 hefur hún verið í eigu Árvakurs hf.
Dagskrár- og tónlistarstjóri K100 og Retro 895 er Sigurður Þorri Gunnarsson
Útvarpsstjóri K100 er Magnús E. Kristjánsson.
Sölustjóri – Björn Þórir Sigurðsson.
Smellið hér til að sjá útsendingarsvæðin
1. janúar 2020 / Verð er án virðisaukaskatts
Hólf | Tími | Stöðvar | Verð pr. sek. |
Ísland vaknar – Morgupartur 1 | 7 til 10, mán–fös | Combo K100 + Retró | 350 |
Hádegispartur | 10 til 13, mán–fös | Combo K100 + Retró | 350 |
Eftir hádegið | 10 til 16, mán–fös | Combo K100 + Retró | 350 |
Siggi & Logi | 16 til 18, mán–fös | Combo K100 + Retró | 350 |
Kvöld | 18 til 23.50, mán–fös | Combo K100 + Retró | 110 |
Helgar | 9 til 17, lau–sun | Combo K100 + Retró | 240 |
Eftir fréttir 10 sek (mest einn aðili) | 7 til 18, mán–fös | Combo K100 + Retró | 450 |
Hólf | Fjöldi | Vikan |
Hægri turn 1 | 4 í plássi | 52.250 |
Hægri turn 2 | 4 í plássi | 45.500 |
Hægri kubbur | 2 í plássi | 41.250 |
Risamiðja | 2 í plássi | 48.750 |
Tikker | 2 í plássi | 49.250 |
Risamiðja + tikker combo | 2 í plássi | 65.250 |
Miðlar Árvakurs hf. leggja mikla áherslu á áreiðanleika umfjöllunar sinnar. Ritstjórn þessara miðla starfar í hvívetna á forsendum vandaðrar blaðamennsku.
Auk ritstjórnarefnis birta miðlar Árvakurs hf. margskonar auglýsingar og kynningarefni sem auglýsendur og samstarfsaðilar greiða fyrir. Þess er ávallt gætt að notendur miðlanna sjái glöggt að um keypt efni er að ræða. Þessu efni má skipta í tvennt:
Efni frá auglýsendum sem er unnið á þeirra forsendum. Áhersla er ávallt lögð á að auglýsingarnar uppfylli ákvæði laga, samræmist almennu velsæmi og séu vel aðgreindar frá ritstjórnarefni. Árvakur hf. áskilur sér rétt til að hafna birtingu auglýsinga uppfylli þær ekki þessi skilyrði. Árvakur hf. áskilur sér einnig rétt til að merkja auglýsingar með orðinu „Auglýsing“ sé talin hætta á að viðkomandi auglýsing líkist um of ritstjórnarefni.
Miðlar Árvakurs hf. bjóða upp á samstarf við þá sem vilja koma ákveðnum upplýsingum, hugmyndum vörum eða þjónustu á dagskrá með umfjöllun. Efni af þessu tagi er merkt „Í samstarfi við [nafn samstarfsaðila]“ eða „Kostuð umfjöllun“ til aðgreiningar frá hefðbundnu ritstjórnarefni. Þetta efni þarf að uppfylla þær kröfur um áreiðanleika sem gerðar eru til ritstjórnarefnis og vera áhugavert fyrir lesendur að mati ritstjórnar. Ritstjórn hefur síðasta orðið um efnistök og hvort slíkt efni er unnið og birt.
Samningi um auglýsingar, hefðbundnar eða óhefðbundnar, eða samstarfsverkefni fylgja aldrei fyrirheit um fyrirgreiðslu á ritstjórn blaðsins þegar kemur að annarri umfjöllun eða fréttaskrifum.